Kynning á úthlutun styrkja Orkusjóðs 2024
16 ágúst 2024Hægt verður að fylgjast með kynningunni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.
Styrkir Orkusjóðs eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt. Styrkveitingar þessa árs nema rúmlega 1,3 milljörðum kr. og hafa aldrei verið hærri.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ávarpar fundinn og Haraldur Benediktsson, stjórnarformaður Orkusjóðs, kynnir úthlutanir sjóðsins.
Fleiri fréttir