Hefur þú þá valið sölufyrirtæki rafmagns?
Dreifiveitur eru ekki söluaðilar
Dreifing raforku er sérleyfisþáttur þannig að einn aðili sér um dreifingu á hverjum stað. Notendur geta ekki valið sér dreifiaðila. Hlutverk dreifiveitna er að annast dreifingu raforku og kerfisstjórnun á dreifiveitusvæði sínu. Fimm dreifiveitur eru starfandi á Íslandi. Þær eru: HS Veitur, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða, Veitur og RARIK. Dreifiveitum er óheimilt að hafa aðkomu að vali þínu á raforkusala með því að gefa upp kjör raforkusölufyrirtækja.
Hvernig veit ég að ég þarf að velja? Og hvenær þarf ég að vera búin að velja?
Ef þú hefur ekki verið í viðskiptum við sölufyrirtæki raforku síðastliðna 90daga, ert t.d. að kaupa þína fyrstu íbúð eða það tekur einhvern tíma aðskipta um húsnæði, svona millibilsástand eins og við könnumst mörg við,eða ert hreinlega af einhverjum öðrum ástæðum að tengjast rafveitu ífyrsta skipti, þá er mikilvægt að hafa samband við þaðraforkusölufyrirtæki sem þú kýst að vera í viðskiptum við og geraraforkusölusamning. Ef þessu er ekki sinnt innan 30 daga fránotendaskiptum er dreifiveitum heimilt að stöðva raforkuafhendingu tilviðkomandi notanda, að undangenginni skriflegri viðvörun um stöðvunraforkuafhendingar. Raforkusölufyrirtækið kemur raforkuviðskiptum á fyrirviðkomandi viðskiptavin.
Hægt er að sjá samanburð á raforkuverði á heimasíðu Orkuseturs
Hvað ef þú vilt bara skipta?
Ef þú vilt skipta og eiga viðskipti við annað raforkusölufyrirtæki er það gert með því að hafa samband við það raforkusölufyrirtæki sem þú hyggst eiga í viðskiptum við og raforkusalinn sér um söluaðilaskiptin.
Öll ljós slökkt og enginn heima?
Við viljum ekki lenda í því að lokað verði fyrir rafmagnið hjá okkur. Þaðgetur þó gerst ef samningur um afhendingu raforku er ekki til staðar,vegna þess að þá hafa dreifiveitur heimildir til að stöðva afhendinguraforku. Það er því mikilvægt að við veljum okkur raforkusala, einfaldlegavegna þess að dreifiveitum er óheimilt að afhenda rafmagn til þeirra semekki hafa gildan samning við sölufyrirtæki raforku.